RONI HORN

VATNASAFN /

LIBRARY OF WATER

STYKKISHÓLMUR, ICELAND

  • Um
  • INNSETNINGARNAR
  • VEÐRIÐ VITNAR UM ÞIG
  • GESTAÍBÚÐ RITHÖFUNDA
  • RONI HORN & ÍSLAND
  • LEYNDARDÓMAR VATNASAFNSINS
  • BYGGINGIN
  • SKÁKHERBERGIÐ
  • ÚTGÁFA
  • FJÖLMIÐLAR
  • UPPLÝSINGAR
  • ÞAKKIR
  • VATN, ÚRVAL
  • You Are The Weather (Iceland)
  • ÍSLENSKT ORÐASAFN
  • ENSKT ORÐASAFN
  • KYNNING
  • FRÁSÖGNUM SAFNAÐ
  • VALDAR FRÁSAGNIR
  • ÞAKKIR
  • KYNNING
  • ÚTHLUTUNARNEFND
  • RITHÖFUNDARNIR
  • FERILL
  • VERK FRÁ ÍSLANDI
  • SKRIF FRÁ ÍSLANDI
  • BÓKVERK
menu

EN English
IS Icelandic

FERILL

Roni Horn


Roni Horn fæddist í New York árið 1955 og ólst upp í Rockland County, gömlu úthverfi í borginni. Árið 1975 útskrifaðist hún frá Rhode Island School of Design og sama ár hélt hún í fyrstu Íslandsferð sína. Nánast af tilviljun, án þess að hafa um það neina mótaða áætlun, varð Ísland fyrsta landið þar sem hún freistaði gæfunnar utan Bandaríkjanna. Árið 1978 útskrifaðist hún með meistarapróf í höggmyndalist frá Yale University. Frá Yale hlaut Horn ferðastyrk sem er kenndur við Alice Kimball. Hann nýtti hún til að fara aftur til Íslands og leggja þar í langt ferðalag á mótorhjóli. Reynsla hennar af því að dvelja á afskekktum svæðum á Íslandi, oftast ein síns liðs, hefur í áranna rás haft úrslitaþýðingu í lífi hennar og verkum. Árið 1982 dvaldist Horn um tveggja mánaða skeið í vita á suðvesturhorni landsins þar sem hún gerði Bluff Life-teikningarnar og myndröðina Untitled (Dyrhólaey) sem nú eru í söfnunum MOMA í New York og Kunstmuseum Basel. Fyrstu verk Horn eru skúlptúrverk í anda hugmyndastefnunnar með naumhyggjuívafi. Bókmenntir hafa haft mikil áhrif á verk hennar eins og einkar vel kemur fram í skúlptúrverkum hennar. Emily Dickinson (Key and Cues, 1994–2004) og Clarice Lispector (Rings of Lispector (Agua Viva), 2004) gegna þar lykilhlutverki.

Frá því á öndverðum níunda áratug síðustu aldar hefur Horn einnig unnið með ljósmyndir og teikningar. Í upphafi einskorðuðust ljósmyndir hennar við framhaldsútgáfuverk hennar í mörgum bindum, To Place (1990 til dagsins í dag). Árið 1994 gerði hún fyrstu ljósmyndainnsetningu sína, You are the Weather. Í kjölfar hennar kom Pi (1998), verk byggt á myndum sem voru teknar við norðurheimskautsbaug á Íslandi.

Ljósmyndaportrett hennar eru iðulega stórar innsetningar þar sem eru notaðar myndraðir eða myndaflokkar. Þær eru nú orðnar fimm: You are the Weather, 1994, This is Me, This is You, 2000, Cabinet of, 2001, Portrait of an Image, 2005. Fimmta portrettið er bók: Index Cixous, 2005. Skúlptúrverk hennar eru oft pöruð saman líkt og ljósmyndir og teikningar hennar. Skúlptúrinnsetningarnar Pair Objects, 1980–1986, voru fyrst sýndar í Clocktower í New York árið 1980. Pörun gegnir mikilvægu hlutverki í Dead Owl, 1997, This is Me, This is You, 2000, Becoming a Landscape, 2001, Untitled-myndröðinni, 1998 til dagsins í dag, og Doubt by Water, 2004.

Í áranna rás hefur Horn unnið til margra verðlauna. Meðal þeirra eru þrír NEA-styrkir, Guggenheim-styrkur árið 1990 og Alpert-verðlaunin árið 1998. Meðal nýlegra safnsýninga Horn eru Museum für Gegenwartskunst, Basel, 1998; Musée d’Art Moderne de la Ville de Paris, París, 1999; Castello di Rivoli, Torínó, 2000; Whitney Museum of American Art, New York, 2000; DIA Center for the Arts, New York, 2001; Centre Pompidou, París, 2003; Fotomuseum, Winterthur, 2003; Art Institute of Chicago, 2004; Folkwang Museum, Essen, 2004. Árið 2009 var opnuð yfirlitssýning á verkum Horn í Tate Modern í London sem síðan var flutt í Whitney Museum of American Art, New York árið 2010. Sú hugmynd að sjálfsmyndin sé breytileg og háð kringumstæðum, að hið óþekkta standi með þversagnarkenndum hætti nærri hinu kunnuglega og að merking hvers verks jafngildi þeirri reynslu sem það miðlar birtist í mörgum verkum Horn.

www.hauserwirth.com

Bibliography

A Selection of Books and Catalogues about Roni Horn



Schwarz, Dieter. Rare Spellings,Selected Drawings: 1985-92; Richter Verlag, Dusseldorf; 1993.

Howard, Jan. Inner Geography,
Maryland: The Baltimore Museum of Art, 1994: 32pp.

Tillman, Lynne. Gurgles, Sucks, Echoes,
Jablonka/Marks, New York and Cologne, 1995.

Koepplin, Dieter. Roni Horn/Drawings,
Cantz Verlag, Ostfildern, Germany, 1995.

Kellein, Thomas, Horn, Roni.

Making Being Here Enough: Installations from 1980-1995, Kunsthalle Basel and Kestner Gesellschaft, Hannover, 1995.

Gonzalez-Torres, Felix, Horn, Roni, et al. Felix Gonzalez-Torres, Roni Horn, Sammlung Goetz, Munich, 1995.

hooks, bell, Gonzalez-Torres, Felix, et al. Earths Grow Thick, Wexner Center for the Arts, Columbus, Ohio, 1996.

Horn, Roni. You are the Weather, Scalo Verlag, Zurich, 1997.

Schorr, Collier, Gunnarsson, Styrmir, Gorovoy, Jerry, Lewis, Diane, Spector, Nancy, Parkett, No.54, Zurich, 1998-99: 26-73 and inside front and back cover.

Schulz-Hoffmann, Carla. Roni Horn: Pi, Staatsgalerie moderner Kunst, Munchen, Hatje Cantz Verlag, 1999. 128pp.

Bossé, Laurence, Bernadac, Marie Laure, Spector, Nancy. Events of Relation, Musée d’Art Moderne de la Ville de Paris and capc Bordeaux, 1999.

Horn, Roni. Point d’ ironie, Published by Agnes B., Paris, March 2000. (Artist Project) Cooke, Lynne, Neri, Louise, de Duve,Thierry, Lispector, Clarice, Horn, Roni.

Roni Horn, Phaidon Press, London, May 2000.

Horn, Roni, Gehry, Frank, Herzog, Jacques, Irwin, Robert, Oldenburg, Claes et al, Art and Architecture, Chinati Foundation, Marfa, Texas, 2000: 59-80.

Avgikos, Jan, Merrill-Campagnolo, Kathleen. Still Water, Lannan Foundation, Sante Fe, 2001.

De Duve, Thierry, Herkenhoff, Paulo, et al. If on a Winter’s Night… Roni Horn…, Fotomuseum Winterthur and Steidl Verlag, Göttingen, 2003. (English/German)

Herkenhoff, Paulo; Storsve, Jonas. Roni Horn, Drawings, Centre Pompidou, Paris, 2003: 80pp. (English/French)

Lingwood, James; Frida Björk Ingvarsdóttir. Some Thames / Haskólínn á Akureyri, Steidl Verlag, Germany, 2003, 48pp. (English/Icelandic)

Eskildsen, Ute. To Place: Postcards from the 1st 8 Books, Museum Folkwang, Essen & Steidl Verlag, 2004. 47pp.

Dean, Tacita. Vettesse, Angela. Angie and Emily / Dickinson, Inverleith House, Edinburgh and Museion, Bolzano, 2006. 96pp.

Cixous, Hélène. Roni Horn: Rings of Lispector (Aqua Viva), Hauser& WirthSteidl, Zurich and Göttingen, Germany, 2006.120pp.

Return to top

Roni Horn