RONI HORN

VATNASAFN /

LIBRARY OF WATER

STYKKISHÓLMUR, ICELAND

  • Um
  • INNSETNINGARNAR
  • VEÐRIÐ VITNAR UM ÞIG
  • GESTAÍBÚÐ RITHÖFUNDA
  • RONI HORN & ÍSLAND
  • LEYNDARDÓMAR VATNASAFNSINS
  • BYGGINGIN
  • SKÁKHERBERGIÐ
  • ÚTGÁFA
  • FJÖLMIÐLAR
  • UPPLÝSINGAR
  • ÞAKKIR
  • VATN, ÚRVAL
  • You Are The Weather (Iceland)
  • ÍSLENSKT ORÐASAFN
  • ENSKT ORÐASAFN
  • KYNNING
  • FRÁSÖGNUM SAFNAÐ
  • VALDAR FRÁSAGNIR
  • ÞAKKIR
  • KYNNING
  • ÚTHLUTUNARNEFND
  • RITHÖFUNDARNIR
  • FERILL
  • VERK FRÁ ÍSLANDI
  • SKRIF FRÁ ÍSLANDI
  • BÓKVERK
menu

EN English
IS Icelandic

GESTAÍBÚÐ RITHÖFUNDA

ÚTHLUTUNARNEFND


Fríða Björk Ingvarsdóttir Sjálfstætt starfandi höfundur og gagnrýnandi. Fædd 1960 á Íslandi og hefur búið þar að undanskildum 12 árum sem hún var búsett í Lúxemborg og Englandi. Hún er bókmenntafræðingur að mennt, með MA-gráðu í skáldsagnagerð nítjándu og tuttugustu aldar frá East Anglia háskólanum i Norwich, Englandi. Frá því að hún sneri heim til Íslands árið 1994 hefur hún starfað sem þáttagerðamaður fyrir útvarp og sjónvarp, í leikhúsi, sem kennari við Háskóla Íslands og Kennaraháskólann, sem þýðandi skáldsagna, skrifað greinar, fyrirlestra og gagnrýni um myndlist, bókmenntir, menningu og þjóðfélagsmál. Fríða Björk var blaðamaður og menningarritstjóri á Morgunblaðinu um 10 ára skeið frá 2000 til 2010. Hún var formaður stjórnar CIA, Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar frá 2006 til 2009.

Dagur Kári Pétursson Kvikmyndagerðarmaður/tónlistarmaður Fæddur 1973. Útskrifaðist frá Den Danske Filmskole árið 1999. Meðal verka eru: "Lost Weekend" (1999), "Nói Abínói" (2003) "Dark Horse" (2005) og The Good Heart (2010). Meðlimur hljómsveitarinnar "slowblow" sem hefur sent frá sér fjórar breiðskífur.

Hjálmar Sveinsson Dagskrárgerðarmaður/heimspekingur Lauk MA í heimspeki frá Freie Universität í Berlín. Hann hefur ritað bækur um listamennina Rósku, Megas Dag og Elías Mar og þýtt fjölda ritverka á íslensku t.d. etir Thomas Bernhard, Robert Walser, Heinrich von Kleist, Walter Benjamin og Susan Sontag. Hann var einn af stofnendum bókaraðarinnar Atvik og hefur starfað við ýmsa dagskrárgerð hjá RÚV í hljóðvarpi og sjónvarpi. Meðal þátta í sjónvarpi var Bókaspjall í Mósaík.

introduction