VATNASAFN
by Roni Horn
VATNASAFN / LIBRARY OF WATER er útgáfa á vegum Artangel / Steidl útgáfunnar, er kannar tengslin á milli ólíkra þátta langtímaverkefna Roni Horn á Íslandi. Bókin samanstendur af flokkum mynda og texta. Í bókinni er m.a. úrval texta eftir listamanninn, sem sprottið hafa úr reynslu hennar af því að dveljast á Íslandi, auk greina eftir Briony Fer, prófessor í listasögu við University College í London, Adrian Searle, listgagnrýnanda dagblaðsins The Guardian og tvo þeirra rithöfunda sem dvalið hafi í gestaíbúð Vatnasafnsins, þær Oddnýju Eiri Ævarsdóttur og Guðrúnu Evu Mínervudóttur. Frekari upplýsingar auk leiðbeininga um hvernig hægt er að kaupa VATNASAFN / LIBRARY OF WATER, má finna hér: http://www.steidlville.com/books/955-VATNASAFN-LIBRARY-OF-WATER.htm



