VEÐRIÐ VITNAR UM ÞIG
KYNNING
Roni Horn
Sameiginleg sjálfsmynd
Veðrið mitt hófst meðan ég var í grunnskóla. Kennarinn tilkynnti okkur krökkunum að fellibylur væri í aðsigi. Síðan gaf hún okkur frí og sagði hvössum rómi: „Hlaupið heim!“ Ég hljóp alla leiðina, hrædd í fyrstu, en uppnumin þegar á leið. Heima hnipraði ég mig saman undir stóra glugganum og horfði á himininn verða grænan og trén slást til með braki í vindinum.
Allir eiga sér sögu um veðrið. Það er ef til vill eitt af því fáa sem við eigum öll sameiginlegt. Og þótt það sé afar mismunandi frá einum stað til annars – er það á endanum eitt veður sem við búum öll við. Fólk miðlar veðrinu sín á milli í tali um daginn og veginn hvar sem er. Sumir segja að með því að tala um veðrið sé maður að tala um sjálfan sig. Hvað sem hæft er í því er veðrið okkar hvern dag sem líður og það er á góðri leið með að breytast í okkur. Veðrið vitnar um þig er eitt upphaf að sameiginlegri sjálfsmynd.
Safnað í sjálfsmynd
Við fórum til fólks og tókum upp veðurfrásagnir þess sem voru síðan skráðar, lagfærðar og þýddar. Við völdum þátttakendur eftir munnlegum ábendingum. Í þessum fyrsta áfanga takmörkuðum við okkur við Stykkishólm og næsta nágrenni með einni undantekningu. Oddný Ólafsdóttir var fengin til flytja veðurfrásögn í tilraunaskyni svo við gætum þróað með okkur ákveðið verklag, en við héldum sögu hennar sem vísbendingu um það sem í vændum er. Ef veðurfrásögnum verður safnað í öðrum landshlutum verður myndin enn blæbrigðaríkari og margslungnari. Með söfnun víða um heiminn yrði hugsanlega til sameiginleg sjálfsmynd sem eins konar táknmál án babelskrar sundrungar. Eftir því sem safnið stækkar skýrist þessi mynd. Ég ímynda mér að hún verði að lokum svo skýr að hún jafnist á við myndefnið sjálft.
Sameignleg sjálfsmynd er þversögn en ekki þó fráleit
Þótt margt sé sameiginlegt skynjar hvert byggðarlag sem og einstaklingur veðrið á sinn sérstaka máta sem ræðst að miklu leyti af staðháttum. Ég ímynda mér veðurfrásagnir frá Laramie, Palermo, Hudson Bay, Gorkí, Bajkalvatni, Timbúktú og svo framvegis. Ísland markar aðeins upphafið. En á Íslandi hafa menn í meira mæli en víðast hvar neyðst til að sætta sig við veðrið sem hina ráðandi, í raun óútreiknanlegu nærveru sem hefur áhrif á alla hluti á eyjunni. Saga Íslands er að miklu leyti saga sem hefur mótast af veðri og jarðfræðilegum aðstæðum.
Nú er árið 2006. Veðrið er lykilþversögn okkar tíma. Gott veður er iðulega rangt veður. Hið góða á sér stað í hinu nálæga og einstaklingsbundna og hið ranga á sér stað í kerfinu sem heild. Vegna þess hve loftslagsbreytingarnar eru stórar í sniðum verða þær svo afstæðar að við berum ekki kennsl á þær, eðlileg tilhneiging okkar til að taka því sem að höndum ber dulbýr hið illa sem gott. Það er vetrarkvöld hér í New York, milt og stillt. Ég borða kvöldmat úti undir berum himni – meðan veðrið umturnar landfræðilegum skilyrðum og tengslum allt í kringum mig.
Heppileg tilviljun
Árið 1845 hófust í Stykkishólmi fyrstu reglulegu veðurmælingar og veðurfræðileg skráning á Íslandi að frumkvæði Árna Thorlacius. Fyrsti kaflinn í Veðrið vitnar um þig á sér líka stað í Stykkishólmi. Snemma á tíunda áratugnum átti ég leið um bæinn og varð starsýnt á byggingu með útsýni yfir hafið. Það var ekki bara Deco-stíllinn né það að húsið minnti mig á vita. Það sem fyrst og fremst vakti athygli mína var að húsið stóð þar sem það bar hæst í bænum. Það jók aðeins á aðdráttarafl þess að það skyldi hafa verið byggt sem bókasafn. VATNASAFN/LIBRARY OF WATER er sprottið af þeirri tengingu, regnhlífarverkefnið sem Veðrið vitnar um þig er hluti af. Það sem okkur fannst upphaflega vera undursamleg tilviljun virðist nú eins konar forlög.
Boð
Að baki verkefninu Veðrið vitnar um þig býr sá ásetningur að búa til safn veðurfrásagna frá Íslandi á netinu. Þegar til lengdar lætur gæti það á endanum orðið samsafn veðurfrásagna víða að úr heiminum. En til að byrja með bjóðum við þér að segja okkur þína sögu af veðrinu, ef þú býrð á Íslandi. Ef þig langar til að leggja þitt af mörkum farðu þá á www.vatnasafn.is
Veðurfrásögnunum sem hér birtast var safnað árin 2005 og 2006. Skyndimyndirnar sem fylgja voru teknar á sama tíma og stað og hvert viðtal. Með þessari útgáfu eru lögð drög að safni veðurfrásagna sem verður haldið til haga á vefsíðunni VATNASAFN/LIBRARY OF WATER. Bókin Veðrið vitnar um þig er gefin út bæði í íslenskri og enskri gerð.
Verkefnið Veðrið vitnar um þig er unnið í tengslum við VATNASAFN/LIBRARY OF WATER í Stykkishólmi.
Reykjavík, February 15, 2007
Return to top



