RONI HORN

VATNASAFN /

LIBRARY OF WATER

STYKKISHÓLMUR, ICELAND

  • Um
  • INNSETNINGARNAR
  • VEÐRIÐ VITNAR UM ÞIG
  • GESTAÍBÚÐ RITHÖFUNDA
  • RONI HORN & ÍSLAND
  • LEYNDARDÓMAR VATNASAFNSINS
  • BYGGINGIN
  • SKÁKHERBERGIÐ
  • ÚTGÁFA
  • FJÖLMIÐLAR
  • UPPLÝSINGAR
  • ÞAKKIR
  • VATN, ÚRVAL
  • You Are The Weather (Iceland)
  • ÍSLENSKT ORÐASAFN
  • ENSKT ORÐASAFN
  • KYNNING
  • FRÁSÖGNUM SAFNAÐ
  • VALDAR FRÁSAGNIR
  • ÞAKKIR
  • KYNNING
  • ÚTHLUTUNARNEFND
  • RITHÖFUNDARNIR
  • FERILL
  • VERK FRÁ ÍSLANDI
  • SKRIF FRÁ ÍSLANDI
  • BÓKVERK
menu

EN English
IS Icelandic

VEÐRIÐ VITNAR UM ÞIG

FRÁSÖGNUM SAFNAÐ


Við erum á heimleið úr Stykkishólmi. Farsíminn hringir og hjúkrunarkona á sjúkrahúsinu skilar því til mín frá fyrrverandi sýslumanni að hann langi til að bæta við frásögn sína um veðrið: „Skipið snerist heilan hring í loftinu og áður en morgnaði var allt fokið um koll.“ Ég þakka fyrir, sé hann fyrir mér í sjúkraherberginu við hliðina á þýskri ritvél og útvarpi sem úr koma veðurfregnir fimm sinnum á dag. Mósaíkmynd óteljandi veðrasagna framkallast fyrir augum mér. Fljótandi mynd af óþekktu landslagi sem mig rámar samt í að þekkja, eins og sögurnar af veðrinu búi til falska minningu um mína eigin upplifun.

Roni Horn bað mig og bróður minn um að taka viðtöl um veðrið. Við nutum aðstoðar föður okkar Ævars, sem um árabil hefur unnið hjá Ríkisútvarpinu. Hugmyndin var að búa til einhverskonar hóp-sjálfsmynd úr röddum Stykkishólms og nærliggjandi sveita. Eins og veðrið sjálft segði sögu sína með hjálp margra ólíkra radda.

Þetta virtist allt liggja mjög beint við og við systkinin samþykktum að fara á vettvang með hljóðnema og myndavél. Saman ræddum við hvernig best væri að standa að söfnuninni. Við ætluðum ekki að biðja sýslumanninn um lista yfir hundrað áhugaverðustu einstaklingana, þá sem segja svo skemmtilega frá. Við vildum heldur láta okkur berast um svæðið, finna fólk sem vildi deila með okkur sögum af reynslu sinni.

Á köldum en björtum haustdegi var svo þessi rannsókn um það bil að hefjast. Við gengum frá höfninni inn í Skipavík. Mennirnir þar vildu engin viðtöl, brostu góðlátlega og bentu okkur á að fara upp á bensínstöð, þar sætu karlar sem biðu örugglega eftir spjalli um veðrið. Við gengum hægt í áttina og kviðum því að trufla næði þeirra með þessum ómerkilegu spurningum okkar. Skrýtið að setja sig í stellingar til að ræða það sem er svo eðlilegt að ræða, það sem er allt um kring. Eins og að reyna að hlaupa undir regnbogann að ætla að tala markvisst um veðrið. En karlarnir voru farnir þegar við komum, allir nema einn. Freysteinn Hjaltalín varð okkar fyrsti viðmælandi og lýsti því þegar norð-norð-vestanáttin snerist í norð-norð-austan.

Frá bensínstöðinni fetuðum við krókaleiðir í gegnum Stykkishólm og svo áfram út í nærliggjandi sveitir. Og við þurftum ítrekað að minna okkur á forsendurnar: Nei, þetta er ekki útvarpsviðtal, þetta er ekki fræðileg rannsókn, þetta er listaverk! En um leið vorum við bara venjulegir gestir úti á landi að tala um veðrið og drekka kaffi, áður en við byrjuðum formlega að tala um veðrið og drekka kaffi. Reynsla föður okkar nýttist vel þegar kom að kaffinu, hvort við ættum að setja upptökuna í gang fyrir eða eftir fyrsta kaffibollann! Geturðu rifjað upp atvik eða tímabil í lífi þínu þar sem veðrið hefur verið í aðalhlutverki?… Kemur mynd upp í hugann þar sem veðrið er í forgrunni?… Hefur veðrið áhrif á þig? …Skiptir það þig miklu máli? …Í hvernig veðri líður þér vel?… Telurðu að veðrið hafi breyst á þínu æviskeiði?… Hefurðu óttast veður?… Það er athyglisvert og erfitt að opna fyrir spjall án þess að láta fyrirframgefnar hugmyndir um hvað sé áhugavert stýra samræðunni.

Íbúar Stykkishólms og Helgafellssveitar tóku umleitan okkar vel. Það gladdi okkur að þeir skyldu leggja söfnuninni lið og ljá okkur rödd sína, án þess að óttast að veðrið kæmi upp um þá! Kannski var það sumpart vegna samúðar, þegar við stóðum úti í veðrinu með engan leiðarvísi, leitandi að samræðu um ekki neitt! Og bilið á milli einskis og ekki neins er mjótt. Ef viðmælanda fannst sem hann gæfi ekkert af sér, segði ekkert sérstakt, þá lásum við úr andlitinu löngun til að bæta einhverju við. En þar sem lesendur sjá engin andlit, verða þeir að láta sér nægja að lesa hugsanlegar viðbætur milli línanna.

Á meðan við tókum þessi hundrað viðtöl þá lærði ég eitthvað mikilvægt um Stykkishólm og um Ísland, um raddir, um veður, um samvinnu. Ég veit ekki hvað ég lærði, en það tengist mismunandi hætti fólks á að dvelja í stundinni, lesa í umhverfi sitt og aðra, lifa í hvirflum minninga og gleymsku. Veðrasögusafnið er skjalasafn þess sem menn muna um veðrið og sjálfa sig en kannski líka þess sem menn hafa ákveðið að gleyma, eða hvaða karlmenni vill minnast þess að hafa óttast veður á sjó?

Öll söfn eru skilyrt af tíma, ákveðinni blindu og tiltekinni sýn. Við söfnunina vorum við í samræðu við Roni Horn um bókverkið Veðrið vitnar um þig. Síðan þýddi Bernard Scudder alla textana yfir á ensku og Roni klippti þá til í frásagnirnar sem birtast hér.

Á bakaleið úr Stykkishólmi man ég eftir sögunni af ungverska tónskáldinu Béla Bartók, sem ferðaðist um Transylvaníu og víðar til að safna stefjum og tónbrotum og búa til tónlist úr þeim. Ég velti því fyrir mér hvort veðrasögurnar verði að tónlist fyrir börnin okkar að hlusta á þegar veðrin eru vond. Ég heyri altént þrálát stef, endurtekna hljóma, í gegnum tímana og veðrið.

Oddný Eir Ævarsdóttir

Selected Reports

Return to top

weather reports you