You Are The Weather (Iceland)
KYNNING
MARGRÉT H. BLÖNDAL
ARTIST
Veður er höfuðaflið á Íslandi og sérstæði þess um leið. Enginn skiptir eins oft um ham og skap. Stundum gerir það íbúum auðveldara fyrir og stundum erfiðara en það er alls staðar þátttakandi og það dyntóttur. Við erum tilneydd að kljást við sviptingar á degi hverjum, hverri stundu, alloft eru þær á skjön við áætlanir okkar en búandi hér höfum við víst ekkert val. Veður ræður ríkjum.
Hvernig rifjar maður upp íslenskar veðurlýsingar sem jafnframt vísa inn í fólk með öllum sínum sviptingum? Það er ógerlegt að sitja inni og kalla þær fram eftir minni. Veðráttan er ekta og maður verður að fá hana beint í æð, umvafin eða barin sýnishornum hennar. Sum orðanna vísa ekki beint til veðurs heldur ástands sjávar eða lofts, sbr. þrútið og bólgið en innistæða þeirra er ótvíræð. Í nokkrum tilfellum var sótt í smiðju kvæða, því jafnvel þótt orðin séu ekki á hvers manns vörum í veðurfræðilegu samhengi eru þau skiljanleg sbr. glettnir um vorvindana. Í öðrum tilfellum eiga lýsingarnar við tíðina og gefa um leið vísbendingar um veðrið sbr. spök og gjöful. Ég man ekki til að hafa heyrt vægðarlaust notað um veður en hins vegar fannst mér það viðeigandi í heildarsamhenginu því þar er enga miskunn að finna, hvorki hálfkák né dauðyflishátt en gætir á einum stað linku.
Orðalisti er öðruvísi lesinn af blaði en þegar hann er greyptur í gólf, hátt uppi á bjargi. Listi sem þessi verður seint tæmandi en mér fannst skipta máli að hann yrði kenjóttur eins og veðrið með öll sín stríðu og blíðu blæbrigði. Í innsetningunni gengur maður á flöt mismunandi afla og með hverju skrefi, yfir á næstu hellu breytist veðrið. “Hann” skiptir sífellt um ham.
Þakkir fá: Magnús Þór Jónsson, Sölvi Magnússon, Steinunn H. Blöndal, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Oddný Eir Ævarsdóttir, Haraldur Jónsson, Trausti Jónsson og Tómas R. Einarsson
Margrét H. Blöndal er fædd í Reykjavík árið 1970. Hún lauk prófi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands en hélt síðan til Bandaríkjanna í Rutgers University þaðan sem hún útskrifaðist 1997. Margrét hefur kennt þriggja ára til áttræðum nemendum í Myndlistaskólanum í Reykjavík og Listaháskóla Íslands. Hún er myndlistarmaður og hefur sýnt víða um heim. margrethblondal.net



